Fréttir
13.1.2009
Allt er vænt sem er hestvænt
,,Hvernig kennir maður hesti að hneigja sig?'' - það gæti t.d. verið í gagnabankanum.
Jæja þar sem ég sit hérna súr veik heima og hef ekkert að gera er ekki vitlaust að nota tímann í að velta fyrir sér góðum hugmyndum. Nýverið hef ég verið að sjá fyrir mér veglega heimasíðu, eins og t.d. doktor.is, sem væri aðgengileg öllum og væri stútfull af fróðleik um tamningu og þjálfun hesta. Maður gæti leitað til dæmis að 'Kergja' eða 'Taumstífni' eða hvað sem er og fundið mögulegar lausnir á vandanum í ítarlegu svari líkt og á doktor.is. Ég hefði mjög gaman að gera slíkan fróðleiksvef mönnum og hestum til góða, gæti orðið svo mörgum að gagni. Alltaf spurning um tíma. Var nú ansi iðin við kolann í þessum málum þegar ég var yngri, var með Spurt og Svarað á Krakkavef 847. Það varð svo vinsælt á tímabili að ég var farin að fá bréf frá fullorðnu fólki sem þóttust vera krakkar sem mér fannst mjög gaman og merkilegt. Svo endaði þetta einhvern veginn á aðalvef 847 og sinnti ég þessu þar eitthvað en það komu svona 20-30 spurningar á dag þegar mest lét...og ég gat engan vegin náð yfir það svo þetta datt upp fyrir. En fræðslubanki er eitthvað sem hægt væri að sjá um án þess að þurfa að hafa daglegar áhyggjur af uppsöfnuðum spurningum. Gæti verið málið
Önnur pæling hérna í veikindunum er að ég sé fyrir mér að stofna fyrirtæki síðar á ævinni sem myndi sérhæfa sig í hestvænum útbúnaði. Gæti þá skellt saman öllum pælingunum í eitt sett - Beisli án Méla, Smelluþjálfun...Easy Walker skeifur (langar að gera eitthvað með það í framtíðinni) og fleira og fleira. Stútfylla Ísland af skemmtilegum möguleikum fyrir hestamennskuna með velferð hestsins og öryggi knapans í huga. Ég er nú aðeins byrjuð að kroppa í það svo gaman verður að sjá hvað ég verð búin að gera þegar ég verð komin á hátind lífs míns í kringum 40-60 ára aldurinn. Já það er gaman að lifa, sérstaklega ef maður gefur lífinu þann tilgang að gera heiminn í kringum sig betri og jákvæðari.
Smá fréttir af dýraverndarmálunum, eða dýravelferðarmálunum réttara sagt. Ég fer á fund í vikunni hjá Dýraverndarráði og þar mun ég fá fréttir af hvernig gengur með nýjar lagasmíðar fyrir dýrin. Þetta mun þó taka tíma en gleðilegt er að þetta er loksins á hreyfingu. Dýraverndarsambandið er einnig að fara af stað með vinnuhópa sem munu að leggja sitt af mörkum út í samfélagið. En þar sem ég er með mynd af þessari myndarlegu kanínu verð ég nú að segja frá því að nýr fjölskyldumeðlimur er kominn í hópinn - guðdómleg kanína að nafni Trópí. Óttaleg kúrukanína þetta stelpuskott, elskar að kúra þegar maður liggur upp í sófa með kallinum. Svo er maður allt í einu orðin blautur á fætinum því hún sleikir mann heil ósköp í þakklætisskyni fyrir klappið þetta blessaða dýr. Dýr eru eins og litlir englar, þau eru svo einlæg, hjartahrein og taka manni alltaf eins og maður er. Þess vegna er svo mikilvægt að vernda þau og bjóða þeim góðan, réttlátan og öruggan heim og það vil ég nota líf mitt í - að þessi heimur verði til fyrir þau.
Hafið það sem allra best,
Linda Karen
1.1.2009
Smá fréttir
Prinsessan hún Stilling á Kjartansstöðum
Gleðilegt nýtt ár gott fólk! Vil biðjast velvirðingar á bloggleysinu, ég er ekki nógu dugleg í þessum málum...! En allt er gott að frétta og Stilling kom á hús í byrjun desember. Ég er búin að vera að leika mér að því að smelluþjálfa hana og núna bakkar hún sjálf þegar ég segi ,,bakk'' sem er mjög gaman. Ég er líka að undirbúa hana fyrir spænska sporið og fleira í þeim dúr. Ég verð svo að vera dugleg að þjálfa hana en ég stefni á vorsýningu með dömuna. Ég mun járna hana í febrúar á Easy Walker skeifur og hlakka ég mjög til að prufa þær. Ég járna hana venjulega til að byrja með en mun setja Luvex botna til dempunar á alla hófa. Ég sjálf þekki það vel að finna til verkja í fótum vegna harðs skóbúnaðar með lítillri dempun og verkirnir eru helst í liðamótum og svo beinum og vöðvum. Langar síður að hryssunni líði illa í fótum. Langar mjög að gera rannsókn á áhrifum skeifna á fætur og heilsufar hesta eftir námið á Hvanneyri.
Trippin á Kjartansstöðum eru að verða reiðfær og þetta eru öll efnileg og geðgóð trippi. Ég er búin að læra margt á þessum tíma um tamningar og að kynnast mörgum mismunandi hrossum. Smelluþjálfunin hefur virkað mjög vel og ég er líka mjög ánægð með beislið, en ég hef fengið að byrja á þeim með það og tengt svo mélin saman við það þannig eins og margir gera með snúrumúl. Það sem var svo gott við Beisli án Méla í þessu er að hrossin læra á það nánast í fyrsta skiptið og muna þau alltaf vel hvernig það virkar sem er mjög þægilegt fyrir framhaldið.
Spóla, Heimir og Funi í bakgrunni
Svo lítur allt út fyrir að Spóla sé fylfull við Tývari sem er mjög ánægjulegt enda Tývar gæðingur mikill og hef ég kynnst honum ágætlega en hann er á húsi um þessar mundir. Hryssan er allavega allsverari en hún hefur venjulega verið svo ég er verulega vongóð um árangur. Ég verð að viðurkenna að ég sakna hennar svolítið en hún er svo sérstakur persónuleiki að maður vill hafa hana í kringum sig. Ég innilega vona að afkvæmi hennar erfi hennar geðbrigði og verði sér og öðrim til gleði hvar sem þau koma. Ég stefni á að halda henni undir Töfra frá Kjartansstöðum næsta sumar sem hefur verið minn draumastóðhestur síðan ég sá hann fyrst árið 2002.
Í lokin vil ég sýna ykkur eitt lag með Aizyou sem er hljómsveitin sem ég lagði smá hjálparhönd í haust. Þarf endilega að plögga einu lagi hérna með mér haha en ágætt að byrja á þessu! Set með myndir af hinum og þessum hestum í heiminum með Beisli án Méla sem smá ''myndband''. Lagið heitir Love of Life og er mjög fallegt líkt og öll lög þessarar plötu. Njótið! :)
PS. Set hér með tengil á stórkostlega síðu Pat Parelli þar sem farið er yfir lausn á vandamálum í hestamennskunni og komið er á framfæri framúrskarandi aðferð við þjálfun hesta sem byggist á að velferð hestsins sé í fyrsta sæti.
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43
