Fréttir

27.7.2008

Myndir og smá fréttir



Tývar og Spóla - sönn ást?

Hún Hekla Hermundsdóttir á Ásmundarstöðum var svo elskuleg að senda mér myndir sem hún tók í júní þegar Tývar var settur í hólfið. Var Tývar hinn villtasti sem þótti heldur furðulegt miðað við hvað hann er rólegur í hryssum, en það rann líka fljótt af honum og hann varð brátt samur við sig. Ég virkilega vona að Spóla haldi við honum og kasti heilbrigðu folaldi næsta vor, mikil gleðigjöf yrði það og vonandi fyrir okkur báðar. Ég hef aldrei haldið hryssu áður þannig að mér líður dálítið eins og hálf móðursjúkri verðandi ömmu með þetta allt saman. Allt verður að ganga vel. Ég verð nú að viðurkenna að ég er aðeins farin að velta fyrir mér nafngiftinni á afkvæminu. Ef það verður rauður hestur (og auðvitað eitthvað stjörnóttur sem ég er nú að vona) þá fær hann að vonum að heita Týr - en ef það verður hryssa...ég hef ár til að ákveða mig...vonandi!



Það eru laus pláss í seinni hluta gangmáls hjá Tývari fyrir þá sem hafa áhuga. Það eru að bætast við hryssur hjá honum sem er ánægjulegt enda er þetta mikill gæðagripur sem vert er að gefa gaum.



Tývar að reka sína dömu í rétta átt
fyrsta daginn - hálf villimannslegur á svip


Ég er í smá aukavinnu við tamningar upp í Kjós. Þetta er mjög skemmtilegt tækifæri fyrir mig því ég fæ að eiga við nokkur lítið snert hross og nota smelluþjálfunina og Beisli án Méla mér til aðstoðar. Fór í fyrsta skipti á laugardaginn og tók tvö hross af fjórum og gekk frábærlega vel. Fyrst kenndi ég hrossunum grunnatriði smelluþjálfunar og teymdi þau svo um og hringteymdi. Allt gekk án barnings og ef hrossin urðu hrædd eða óörugg var auðvelt að smella á þau til að segja þeim að þetta væri allt í lagi - að þau væru að gera rétt. Þá fundu þau að þau væru örugg með mér og róuðust niður. Það var búið að venja þau mikið á brauð og verð ég að viðurkenna að mér leist fyrst ekkert á blikuna þar sem þau voru full ágeng fyrst, báru litla virðingu fyrir mínu svæði. Eftir klukkutíma smelluþjálfun voru þau töluvert kurteisari og hegðuðu sér allt öðru vísi gagnvart mér, óðu ekki í mig eins og áður og vingjarnlegt samband var komið á. Ég hef oft byrjað á hrossum en í þetta skiptið var ég með skýrt tungumál og hrossin urðu aldrei ''óþekk'' eða reyndu að ítrekað að flýja - hlustuðu, voru róleg, horfðu alltaf á mig, jöpluðu - og með 10 hross í girðingu við hliðina. Það er ótrúlegt að hafa þetta tungumál, það er miklu áhrifaríkara en nokkur aðferð sem ég hef kynnst. Ég verð með þessi hross út ágústmánuð og mun gera tvö þeirra reiðfær en undirbý hin tvö fyrir áframhald næsta vetur. Bara gaman í þessu góða veðri - og í þessum yndislega dal.



Skötuhjúin Spóla og Tývar ræðast við í góða veðrinu


Keypti mér nýjan hnakk um daginn. Ég hef átt þá marga um ævina því einhvern veginn hef ég alltaf skipt út af því að þeir hentuðu mér ekki eða hestunum mínum. Ég sá áhugavert myndband um gerð íslensku hnakkana - hönnun þeirra fer í raun ekki vel með hestana og dreifir þunganum ekki eins vel og sagt er. Því fór ég á stúfana og fann hnakk í gegnum Úrvalshesta sem kallast Ansur. Þetta er fisléttur hnakkur, sterkur með gott og næmt sæti rétt eins og um dýnu væri að ræða. Hinsvegar er virkið inni í hnakknum níðsterkt og dempar öll högg mjög vel. Hlakka mikið til að nota hann á tamningahrossin sem og á mín hross í framtíðinni. Tel að langþráðri leit minni að rétta hnakkinum sé loks lokið en hann er hnakkur númer 7 í röðinni...og vonandi læt ég þar við sitja.



Spóla hlustar á fallegan ástaróð...

Það er líka gaman frá því að segja að á morgun er ég að fara að syngja lag inn á plötu hjá mjög efnilegri hljómsveit sem kallar sig Aizyou (japanska, þýðir bræðralagsást). Stefnt er á útgáfu í haust og hef ég nú þegar sungið lag inn á plötuna og því ánægjulegt að fá að syngja annað til viðbótar. Birti fyrra lagið hér á síðunni til gamans um leið og ég fæ það í hendur. Þessi tónlist gefur hlustandanum mikla andagift og kraft, fjallar um gleði, ást, frið og að sigra í lífinu. Að einstaklingurinn sé stórkostlegur. Maður verður alla vega óvenjulega jákvæður eftir að hafa ljáð þessari tónlist eyra og yndislegt að fá að leggja verkefninu lið.



Svo sæt saman

Í byrjun ágúst fer ég á fund hjá Dýraverndaráði þar sem ræddar verða hugmyndir að nýjum dýraverndarlögum. Formaðurinn Sigurborg Daðadóttir er nefndarmaður í nefnd sem mun semja ný lög um dýravernd og mun hún mögulega að nýta sér hugmyndirnar sem hún fær frá okkur á fundinum og koma þeim á framfæri. Ég vil endilega fara uppfull af hugmyndum á fundinn - ef einhver lesandi vill benda á eitthvað sem betur má fara - endilega að senda mér póst á lindakaren@beisli.net.

P.s. Takk fyrir góðar móttökur kæra hestafólk.

Þangað til næst - yfir og út.
Linda Karen


Skrifað 27.7.2008 kl. 20:52 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.7.2008

Tývar frá Kjartansstöðum



Ég var alveg í vandræðum að velja graðhest í vor þar sem ég er afskaplega kröfuhörð og einnig mjög erfitt að finna hest á hryssu sem hefur ekki byggingu eftir bókinni. Það leið og beið en enginn hestur stóðst þessar kröfur mínar - að vera svipaður karakter og  hryssan mín, rúmur, fallega gerður, fasmikill, mjög geðgóður, viljugur, eðlishágengur og fyrst og fremst sem flækti nú öll mál - að vera með frábærar hækil- og hnéhreyfingar afturfóta. Heldur mátti tollurinn ekki vera of dýr fyrir verðandi námsmanninn svo ekki var það til að hjálpa til.

Tíminn leið og ég fór að verða hálf örvæntingarfull. Kannski voru þetta ómögulegar kröfur hjá mér? Það var ekki fyrr en um vorið sem mig dreymdi draum. Ég er heldur berdreymin og séu draumarnir skýrir þá hlusta ég yfirleitt á þá því reynslan hefur sýnt að þeir leiða mig í rétta átt.

Draumur
Mig dreymdi að ég væri úti um nótt í grútskítugu hesthúsahverfi í úrhelli, var að leita að hesthúsinu hans Sigga Matt. Ég finn kofann og hleyp undan regninu. Skömmu seinna koma þrír menn ríðandi á brúnum, rennblautum, skítugum hestum. Ég spyr hvar Siggi sé og þá rennur hann skyndilega í hlaðið á glæsilegum rauðtvístjörnóttum hesti, nokkuð hálsþykkum en afar gæðingslegum. Það sem ég tók fyrst eftir var að hesturinn var skraufþurr með gljáandi feld og það lýsti af honum eins og eins konar guðlegri veru. Siggi teymdi klárinn fram hjá fullt af hestum sem áttu það sameiginlegt að vera blautir og skítugir - og allir brúnir (kannski tilvitnun í að mig langar síst í brúna hesta?) - og kom hestinum fyrir í stíu. Hesthúsið var dimmt en þar sem sá rauði stóð var birta en hún stafaði af honum sjálfum. Ég stillti mér upp fyrir framan klárinn og mændi á hann dolfallin. Hann lét öllum illum látum og montaði sig ógurlega, greinilega graðhestur. Eftir stutta stund náði ég augnsambandi við hann og spurði - ,,Ert þú hesturinn sem ég er að leita að?''. Hesturinn hætti hamaganginum, reisti sig, hringaði kverk og horfði djúpt í augun á mér á móti. Svo vaknaði ég. Í huganum renndi ég yfir hvaða hestur þetta gæti eiginlega hafa verið. Allar skúffur í höfðinu opnuðust og heilmiklar skjalaflettingar hófust - Siggi Matt, rauðtvístjörnóttur flugrúmur klár... Tývar frá Kjartansstöðum! Þegar ég skoðaði svo hestinn betur stóðst hann nánast allar mínar kröfur, allt frá karaktereinkennunum til ágætra afturfótahreyfinga og verðið hentaði námsmanninum. Það besta var þó að hann er undan henni Ternu frá Kirkjubæ sem ég tel vera eina bestu ræktunarhryssu sem uppi hefur verið og munu niðjar hennar bera þess vitni inn í framtíðina.

Þegar ég sá svo Tývar í haganum eftir landsmótið þekkti ég fyrir sama gæðingslega augnaráðið og fann á mér að ég hafði valið rétt. Í raun er Tývar ekki tvístjörnóttur en með tímanum hefur myndast hvítur blettur nös hans - og draumurinn minn sýndi hann þannig sem mér þykir heldur skemmtilegt. Að sjá hestinn hlaupa um hagann var hrein unun, þvílíkar eðlishreyfingar - bæði á fram og afturdekkjum. Svona eiga hross að vera.




Tývar 5 vetra á landsmóti 1998 - flugrúmur gæðingur

Tývar er nú í hólfi að Ásmundarstöðum 1 sem er stutt frá Hellu í löngu gangmáli. Ég er umsjónarmaður hans og þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þennan gæðing - endilega hafið samband. Tývar verður til þjónustu út ágúst og ekkert mál er að bæta við hryssum - geðgóður garpur. Þorvaldur á Kjartansstöðum, ræktandi hans og eigandi lætur vel af honum og telur hann einn sinn besta hest. Einnig hefur hann hrósað geðslagi hans mikið en hesturinn er alltaf mjög rólegur og blíður þó viljinn sé alveg blússandi mikill. 

Ég vona alla vega að pörunin heppnist hjá mér og ég eignist hross með eins gæðingslegt augnaráð og yfirbragð og Tývar - og fas og skörungskap hryssunnar.

Skrifað 23.7.2008 kl. 16:22 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.7.2008

Velkomin



Linda með Stillingu - ástin greinilega gagnkvæm... heheh

Velkomin á síðu Lindu Karenar Gunnarsdóttur, nema í Landsbúnaðarháskólanum og hestaáhugamanni með meiru.

Á þessari síðu ætla ég að nota tækifærið til að koma hugleiðingum mínum um hestamennskuna á framfæri og vonandi skapa skemmtilegar pælingar hjá lesendum, þeim og mér til gagns og gamans.

Takk fyrir komuna!

Skrifað 17.7.2008 kl. 16:19 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72656
Samtals gestir: 23889
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 20:23:26