Ný vefsíða Kjartansstaða komin í loftið 19/10/2011
Dár frá Kjartansstöðum (Ae: 8,36), undan Tývari frá Kjartansstöðum og Væntingu Stígsdóttur frá Kjartansstöðum. Ditte Søeborg og Dár urðu heimsmeistarar í tölti ungmenna á HM í Austurríki í sumar fyrir hönd Danmerkur. Kjartansstaðir hafa fengið nýja og endurbætta heimasíðu sem mun verða mjög lifandi í vetur, bæði með fréttum og nýjum ljósmyndum. Ég setti síðuna upp og tókst hún held ég ágætlega. Mikið er af efnilegum hrossum á bænum sem stefnt er með í dóm og keppni á næsta ári svo gaman verður að fylgjast með framvindunni. Einnig eru mörg efnileg hross á söluskrá, bæði mikil keppnisefni sem og ræktunar- og reiðhross. Vefsíða Kjartansstaða: www.terna.is En nú er best að fara að sökkva sér ofan í bækurnar - síðasta prófið á þessari stuttönn á föstudaginn kemur.. Með bestu kveðjum að norðan, Linda Karen Add Comment Fékk fréttir af honum Þórkatli frá Kjartansstöðum í dag, en búið er að taka hann á hús eftir gott frí á haustbeit. Þórketill þessi er háættaður hestur, undan Töfra frá Kjartansstöðum (A: 8,45) og Þotu frá Hólum sem hlaut 8,40 í hæfileika á sínum tíma. Þota er undan tveimur heiðursverðlaunahrossum, Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrá frá Hólum - og Töfri undan Óð frá Brún sem hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Ternu frá Kirkjubæ, sem telja má með allra fremstu kynbótahryssum íslenskrar hrossaræktar. Ekki slæmur genabanki þessi. Ég hélt Stillingu undir Þórketil þann 3. ágúst síðastliðinn, en ég hafði stefnt á að halda henni undir frænda hans, gæðinginn Tývar frá Kjartansstöðum sem er í sérlegu uppáhaldi. Matthíasi Leó, sem er þjálfari og tamingamaður að Kjartansstöðum, datt í hug að Stilling gæti verið að ganga þegar ég kom og heimsótti hana í ágúst. Þórketill var teymdur inn í reiðskemmu til Stillingar til að athuga hvernig hún myndi bregðast við. Kom á daginn að Stilling var nú aldeilis að ganga, en hún hefur aldrei fyrr sýnt slíka hegðan og var ég farin að óttast að eitthvað væri að. Þurfti greinilega stóðhest til. Matti hvatti mig til að nýta tækifærið enda greinilega staður og stund og hesturinn bæði fallegur og efnilegur - ég ákvað að slá til og sé ekki eftir því. ''Spákerlingin'' Það var mjög skrýtið að rétt áður en ég hélt Stillingu undir Þórketil kom undarlegur en mildur vindur yfir hana, fór hring yfir henni, framhjá mér og yfir hana aftur. Þegar þessi sérstaka orka kom framhjá fann ég að folaldið sem nú yrði til yrði hryssa og að hún yrði brún. Ég hef áður séð fyrir kyn og lit minna folalda, nú er spurning hvort þessi ''vitrun'' mín haldi vatni... Draumar í garðinum Það getur verið ansi gaman að draumum... Mig dreymdi draum veturinn 2008 að ég væri stödd fyrir framan æskuheimili mitt í Breiðholti, Krummahóla um hásumar. Ég gekk með yngri systur minni hægra megin við húsið og út í stóran bakgarðinn. Þegar við komum á milli blokkanna blasti strax við okkur hrossahópur á stærsta grasblettinum og þar á meðal var Spóla, gamla hryssan mín, hlaupandi með rauðtvístjörnótt folald. Um sumarið fæddist Eldey og reyndist hún rauðtvístjörnótt. Ég fann svo á mér snemma hausts 2009 að Spóla gengi með hestfolald (Funi jr.) og sömuleiðis haustið 2010 - Spóla kastaði rauðu hestfolaldi 2011 sem er í eigu nýrra eigenda hennar. Haustið 2008 dreymdi mig annan draum sem gerðist í garðinum að Krummahólum. Þá var það góður vinur minn og kona hans með mjög lítið barn, dúðað, enda var snjór yfir öllu. Þau gengu til mín vinstra megin milli húsanna og réttu mér barnið þar sem ég stóð í garðinum. Svo vaknaði ég. Stuttu seinna sagði ég þessum vini mínum í gamni að barnið yrði stúlka, skolhærð með blá augu, hárið svolítið hrokkið. Þarna vissu þau ekki kynið og um vorið fæddist þeim stúlka, skolhærð með blá augu - hárið svolítið hrokkið. Snúið aftur í garðinn 2009 Haustið 2009 dreymdi mig að ég væri að ganga með Hrafnhildi vinkonu heim að Krummahólum og fórum við vinstra megin við blokkina. Vor var í lofti. Á stærsta grasblettinum var risastórt ryðgað rör og vorum við heldur forvitnar og gengum að því þvert yfir garðinn. Við litum inn í rörið og lá þar fríð jörp hryssa með múl á höfði. Lá lítið folald við hlið hennar ofan á ræktarlegu taglinu. Taumur lá í múlinn og leiddum við hryssuna út og kom í ljós að hún var bæði stór og myndarleg. Fíngert folaldið kom út á eftir og reyndist það vera hryssa. Liturinn var svolítið óræður, var svona músarlituð einhvern vegin - en litla hryssan var ákaflega fríð, eitt það fallegasta folald sem ég hef augum litið. Hún hreyfði sig afar vel og var mjög léttbyggð og tignarleg, framparturinn afar fallegur. Snortin af folaldi í draumi Ég varð alveg agndofa í draumnum og gat ekki tekið augun af henni, varð yfir mig heilluð. Hrafnhildur spurði mig undan hverju þetta folald væri og ég svaraði að þetta folald hefði höfuðlagið hennar Stillingar, hún væri móðir hennar. Þá áttaði ég mig allt í einu á því að ég héldi í Stillingu, hún var jarpa hryssan. Hún horfði á mig afar tignarleg og voru augu hennar ákaflega björt. Svo vaknaði ég. Það undarlega var að tilfinningin við að hitta folaldið fylgdi mér enn og fann ég tár í auganu vegna fegurðarinnar og þess fögnuðs sem hafði fylgt því. Mér leið sem á skýi allan þann morgun. Ég þykist vita að þetta folald verði Töfraættað út af útlitinu og nú er spurningin hvort þessi draumur sé um Þórketilsdóttirina sem ég þykist hafa séð fyrir...maður verður nú að láta sig dreyma..... En þangað til má velta fyrir sér - hvað er þetta með garðinn í Krummahólum?! Með bestu kveðjum, Linda Karen Nýtt á Íslandi - ThinLine ! Nú verð ég að segja svolítið frá nýju vörunni sem ég er orðin umboðsaðili fyrir hérlendis. Þessar ágætu vörur ganga undir nafninu ThinLine og búa þær yfir sérstökum eiginleikum vegna efnis sem notað er í þær. Vörurnar eru undirdýnur, botnar, hlífar og fl. Dempar högg Ég kynntist ThinLine þegar ég var að vafra á netinu síðasta vetur. Ég ákvað að festa mér eitt eintak til prufu enda vakti lýsingin á vörunni mikinn áhuga minn. Sagt var að dýnan dempaði högg gífurlega, bæði á hest og knapa, losaði vel hita, virkaði sem stoppdýna á hnakkinn (bæði gott fyrir knapa og hest) og dreifði einnig þrýstingi jafnar um bak hestsins. Mér leist heldur betur vel á þetta, ekki síst varðandi dempunina, en ég fékk oft óþægindi í liðamót eftir reiðtúra. Einnig upplifði ég gjarna þreytutilfinningu í líkamanum þegar ég var komin heim úr hesthúsinu og því fannst mér ThinLine sannarlega skoðandi. Ný tilfinning Sumir muna kannski eftir virkislausa Fhoenix Vogue hnakkinum sem ég keypti hér um árið - frábær hugmynd sem virkaði að hluta (féll vel að hestinum og dempaði högg) en hnakkurinn var að mörgu leiti meingallaður. Ég setti út á þetta við framleiðanda sem breytti hönnun hnakksins eftir minni ábendingu en ekki fékk ég að skila gripnum svo ég varð að selja hann aftur út til Bretlands. Þá sat ég eftir með ágæta reiðdýnu sem ég neyddist til að nota alfarið síðastliðinn vetur. Þegar ég reið svo út fékk ég iðulega þreytuverki í liðamót enda um enga dempun að ræða í dýnunni. ThinLine undirdýnan barst mér svo snemma vetrar og var ég mjög spennt að reyna hana. Um leið og ég settist á bak með ThinLine undir reiðdýnunni var strax eins og eitthvað væri breytt. Tilfinningin var eins og maður sæti þéttar og betur á hestinum og maður fann varla höggin sem komu áður. Eftir þennan fyrsta reiðtúr með Thinline fékk ég enga verki í liði eða upplifði þreytutilfinningu - og ég tók einnig eftir því að hryssan varð mun ferskari og beitti sér betur en ella, þá sérstaklega á brokki. ThinLine stóð fyrir sínu Ég reið hryssunni áfram frameftir vetri með þessum hætti, en fylgdist þó glöggt með bakinu á henni. Hún virtist alltaf stálslegin og kveiknaði sér hvergi þótt ég riði henni 3-5 sinnum í viku með virkislausa reiðdýnu og ThinLine dýnuna undir. Susi Braun dýralæknir kom til að hnykkja hryssuna snemma vors og bað ég hana sérstaklega um að meta bakið á henni til að vera viss um að allt væri með felldu. Susi sagði að hryssan væri mjög góð í baki, engir aumir blettir og allt í toppstandi. Nú er ég ekki að mæla með ofnotkun reiðdýna en þetta sýndi mér að ThinLine dýnan stóð fyllilega fyrir sínu, bæði fyrir mig sem knapa og fyrir hryssuna. ThinLine hef ég einnig prófað undir virkishnakka, dýnan heldur áfram að taka á sig högg sem ella hefðu lent á hesti og knapa. Virkishnakkar eru hannaðir m.a. til að taka á sig högg en þrátt fyrir það finnur maður heilmikinn mun að vera með ThinLine undirdýnuna - og án hennar. Ég ríð núna út í Ástund Xenophon sem er mjög góður hnakkur, en þó verð ég að hafa ThinLine með í hvern reiðtúr ef ég vil vera alveg laus við alla þreytu í skrokknum. ThinLine ein sinnar tegundar á Íslandi ThinLine undirdýnurnar eru einfaldlega frábærar og sameina krafta margra undirdýna í einni - en ThinLine hefur sennilega ein þann eiginleika að dempa mjög högg af undirdýnum hérlendis. Ég er ferlega spennt fyrir þessum vörum og hef mjög mikla trú á að þær geti orðið hestum og mönnum að gagni hér á landi og stuðli að aukinni velferð beggja. Vefsíða fyrir þessar frábæru vörur er í vinnslu og verður enginn svikinn af ThinLine undirdýnunum, ein slík ætti að vera skyldueign í hverju hesthúsi að mínu mati miðað við virkni hennar fyrir knapa og hest. Hér má lesa nánar um virkni ThinLine á enskri vefsíðu framleiðanda á meðan sú íslenska er í smíðum: www.thinlineglobal.com/ Með bestu kveðjum, Linda Karen Ný sýn á fóðrun hrossa 28/09/2011
Ágætt myndband sem fjallar stuttlega um meltingu hrossa. Maður uppfræðist hér á Hólum á degi hverjum og finnst mér alltaf jafn gaman að því þegar ég heyri eitthvað sem ég hafði aldrei spáð í áður. Áfanginn Fóðrun og uppeldi hrossa hefur t.d. verið mjög fræðandi, sérstaklega í ljósi þess að mun meiri fræði er á bak við fóðrun hrossa en ég í raun taldi. Ég hafði farið áfangann Fóðurfræði við LbhÍ en hann fjallaði ekki nægilega um um hross svo þessi áfangi kemur sér vel. Mun meira á bak við fóðrun Ég mat alltaf heyið eftir ilmi þess og útliti sem og áhuga hrossanna á því þegar ég átti eigið hesthús í D-tröðinni 18-22 ára að aldri. Gaf þeim alltaf viðhaldsfóður fyrir reiðhesta sem er ca. 6 kg á dag. Ég lenti alltaf í því að einhver hrossanna grenntust of mikið og önnur grenntust hreint ekki neitt, sama hvað maður hreyfði þau nánast. En mun meiri fræði er að baki fóðrun hrossa en að gefa eina lúku kjarnfóðurs og 6 kg af ilmandi heyi - maður verður að vita þarfir viðkomandi einstaklings - meta innihald fóðursins og gefa hestinum út frá þeim upplýsingum. Vafalaust eru margir sem skoða þetta ávallt á þennan hátt og mæla ofan í sína hesta og fylgjast vel með, en ég held þó að það séu nokkrir svona grænir eins og ég þarna úti og gaman að drepa niður á þetta til gamans. Er að skrifa stuttan pistil úr efninu svona til fræðslu og gamans sem ég birti bráðlega. Ágúst Sigurðsson og Skúli Skúlason staðfesta samninginn um samstarf skólanna tveggja árið 2007. Aðrir á myndinni eru Emma Eyþórsdóttir, Víkingur Gunnarsson, Sveinn Ragnarsson og Þorvaldur Kristjánsson. Þessi mynd er í ferlegum gæðum en er samt býsna skemmtileg af þessum merkisdegi. Frétt af Hestafréttum. Kennari uppá 10.0 Sveinn Ragnarsson Ph.D, dósent við hestafræðideildina á Hólum kennir þennan ágæta áfanga að nafni Fóðrun og uppeldi. Mig langar mjög að leggja fyrir mig kennarastarfið í framtíðinni og verður að segjast að Sveinn er sannarlega fyrirmynd því hann er einn besti kennari sem ég hef haft. Hann hefur einstakt lag á að ná öllum bekknum með sér og stundum er nú ansi gaman að fylgjast með því hvernig hann nær hverjum einasta nemanda til að einbeita sér í tímum - og að hafa gaman að náminu um leið. Hann er sömuleiðis mjög fróður um öll efnistök hestafræðinnar. Þetta verður maður að tileinka sér, alveg frábær kennari. Sveinn virðist hafa mikla trú á okkur hestafræðingunum og segir stundum glettnislega við okkur að við séum framtíðin og að við eigum eftir að verða íslenska hestinum og samferðamönnum hans að miklu gagni með störfum okkar. Það er ekki oft sem maður fær kennara sem hefur trú á manni og þetta hvetur mann alveg ósegjanlega. Víkingur Gunnarsson deilir líka þessari trú á B.Sc. hestafræðinemum og sömu sögu má segja um Þorvald Kristjánsson við LbhÍ á Hvanneyri. Mér þykir mjög vænt um þetta, ásamt öðrum samnemendum mínum. Með bestu kveðjum að norðan, Linda Karen Ný eldheit vara á leiðinni 26/09/2011
Hann Funi jr. á vafalaust eftir að njóta vörunnar góðu í framtíðinni, en hún stuðlar að aukinni velferð manns og hests. Ég hef fengið staðfest að ég hef fengið umboð fyrir vægast sagt frábærri vöru frá Bandaríkjunum. Það er ekki til vara með þessa virkni hérlendis að mér vitandi og ég er ótrúlega ánægð að fá umboðið enda stuðlar varan að aukinni velferð manns og hests. Ég hef verið nota þessa vöru í leyni undanfarið og hún er stórkostleg, finn þvílíkan mun. Ég ætla nú ekki að segja alveg strax hver þessi vara er eða hvernig hún virkar, en ég mun upplýsa það í vikunni. Með bestu kveðjum, Linda Karen Gruflað í myndböndum 24/09/2011
Töfri sýndi strax miklar fram- og afturfótahreyfingar sem folald. Var að fara yfir nokkur myndbönd frá hrossaræktarbúinu á Kjartansstöðum og rakst á þetta myndband af honum Töfra frá Kjartansstöðum, 7 daga gömlum þar sem hann fylgir móður sinni, Ternu frá Kirkjubæ. Ég fæ alltaf hálfgerða gæsahúð af því að horfa á þetta myndband, vonandi verður maður svo lánsamur að slíkt folald fæðist manni einhvern tímann á ævinni. Hluti af hrifningunni er þó hryssan enda hefur Terna verið einstök í mínum huga allt frá því ég var unglingur. Hefði mér þótt afar ánægjulegt að fá að hitta hana sjálfa hefði ég haft tækifæri til. Terna var felld árið 2004, þrítug að aldri og er heygð á Kjartansstöðum ásamt syni sínum Stíg frá Kjartansstöðum sem hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi 1994. Segja má að Terna sé hálfgerð ættmóðir góðra afturfótahreyfinga enda rekja flestir hestar er hafa þann eiginleika í ríku magni ættir sínar til hennar - og sést á myndbandinu að hún slær ekki slöku við sjálf kerlingin. Svo er Laufskálaréttarball í kvöld, maður verður nú að kíkja aðeins á það þó maður sé nú hálflélegur alltaf hvað allt slíkt varðar. Með bestu kveðju, Linda Karen Skondnar myndir úr sveitinni 19/09/2011
Eldey 2 vetra og ég. Kíkti í bæinn eftir 3 vikna útlegð fyrir norðan og heimsótti hestana mína á Kjartansstöðum með henni Hrafnhildi Helgu sem kippti myndavélinni með sér og tók þessar fínu myndir. Enn og aftur er maður ferlega flottur til fara og húfan fer líklega að verða sígild á öllum myndum af mér og hrossum.. Tvær vinkonur. Hrossin voru hin hressustu og braggast vel, feit og sæl. Eldey kom fyrst og tók á móti mér líkt og hennar er siður og lofaði hún mér að faðma sig í bak og fyrir. 2 vetra gömul er hún orðin svo nú styttist í að maður fari að koma henni í siðmenninguna og kenna henni kúnstir reiðmennskunnar. Ég hlakka reyndar nokkuð til þess að temja hana því hryssan er ákaflega geðgóð, jákvæð og hænd að manninum. Hún er óvitlaus líka en hún virðist mjög fljót að læra. Verður vafalaust fínasti reiðhestur fyrir kerlu sína í framtíðinni. Hvað er nú þetta? Hrafnhildur bað mig um að fara hálf á bak hryssunni til að sjá hvernig hún myndi taka því í gamni. Eldey stóð eins og stytta á meðan, pollróleg yfir öllu saman og bara nokk sama. Orðin vön öllum hundakúnstum þessi. Gat tekið upp fætur, gripið um eyru, legið hálf á bakinu á henni og snert hana um allt, en ég tók mikið utan um hana þegar hún var folald og lagði hendur yfir bakið á henni. Hún var gerð bandvön 3 mánaða og var eldfljót að átta sig á því og virtist eiginlega finnast það hálfspennandi þegar hún var komin á lagið heldur en hitt. Mæli sannarlega með því að venja folöldin við snemma ef hægt að koma því við, mjög þægilegt upp á framhaldið. Svipur ársins...... Eldey varð auðvitað að sýna af sér smá sprell líkt og hennar er siður. Þegar ég var að spjalla við hana í rólegheitunum fann hryssan stóra rennilásinn á jakkanum mínum og renndi honum skyndilega upp með hvelli! Fannst sennilega að eigandanum væri orðið hálfkalt og úr því yrði að bæta.. Eldey ánægð með sig eftir að hafa hrekkt eigandann. Hún er býsna hress hryssan og það verður gaman að temja hana í framtíðinni, það verður skemmtilegt verkefni sem sífellt styttist í. Funi jr. veturgamall. Húfan ekki langt undan. Funi minn var einnig hinn hressasti og kom fljótlega til að spjalla. Ég var ekki eins mikið með hann eins og hana Eldeyju þegar hann var folald, finn því nokkurn mun á þeim þess vegna þó hann sé hinn blíðasti. Verður sennilega bara hinn myndarlegasti reiðhestur í framtíðinni, góðar hreyfingar í þeim stutta. Gleðin var heldur ekki langt undan. Stilling hefur það gott og er komin í félagsskap folaldshryssnanna í stóðinu, greinilega eitthvað að koma sér fyrir í réttum vinskap. Hún var skráð fengin með 4 vikna fyl í byrjun september og er nokkur tilhlökkun eftir því folaldi. Svo er stefnan að halda henni undir gæðinginn Óskar frá Blesastöðum næsta sumar. Hryssan hafði nú engum grillum gleymt og sýndi kerlu sinni spænska sporið og brosti líka svona myndarlega þegar hún var beðin. Eldey kvödd eftir góða heimsókn í sveitina. En námið flýgur áfram á Hólum og nóg að gera í lestrinum, maður upplýsist hér á degi hverjum. Ég er mjög ánægð með námið og stefni á að skrifa fræðslugreinar sem fyrst úr sumu efninu sem ég hef verið að nema hér fyrir norðan, þ.e úr fóðurfræði og þjálfunarlífeðlisfræði. Ég verð að nefna að hversu innilega þakklát ég er því fólki sem gerði þetta B.Sc. nám að veruleika með sínu ötula starfi, dugnaði og framsækni - þetta nám er sannarlega frábært. Með bestu kveðjum að norðan, Linda Karen Komin heim að Hólum 06/09/2011
Útsýnið sem ég hef fyrir utan herbergisgluggann minn í íbúðinni á Hólum. Nú er 3. árið formlega hafið í hestafræðinni og er mikil tilhlökkun hjá mér að takast á við veturinn. Síðasta árið í hestafræðinni er kennt við Háskólann á Hólum svo ég þurfti að flytja allt mitt hafurtask norður, þar með talið gæludýrastóðið mitt, kanínu og svo tvo naggrísi sem ég bjargaði úr vondri vist - ætlaði að finna þeim nýtt heimili en þeir fóru víst ekki neitt og eru sérdeilis ánægðir með lífið núna blessaðir. Maðurinn skilinn eftir heima í sínu námi ásamt kettinum en þau hafa það gott í bænum á meðan ég sit yfir námsbókunum fyrir norðan. Séð upp að húsinu sem ég bý í ásamt Helgu Karlsdóttur. Erum í íbúð á jarðhæð og þar fer heldur betur vel um okkur. Ég deili íbúð með samnemanda mínum henni Helgu Karlsdóttur sem hefur brennandi áhuga á hestafræðinni eins og undirrituð og stefnir á að starfa innan fagsins í framtíðinni. BS. verkefni hennar er vægast sagt spennandi og á ég eftir að segja frá því þegar lengra líður. Við höfum því mikið að ræða í kotinu enda stefnum við báðar á áframhaldandi nám í hestafræði og verðum að vonum samferða í gegnum mastersnám sem þá hefst næsta haust. Stutt að ganga í skólann Nú er maður kominn á aðra viku í kennslunni og námið stuttlega komið af stað en þrátt fyrir það verður að nefna gott viðmót allra starfsmanna og kennara sem ég hef hitt hér við skólann, frábært fólk. Sömu sögu má sannarlega segja um allt starfsfólkið við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, mjög góður skóli. Ég mæli svo sannarlega með þessu námi hafi fólk áhuga á hinni bóklegu hlið hestamennskunnar sem sannarlega er jafn mikilvæg og sú verklega. Stutt viðtal var tekið við mig út af náminu í síðasta mánuði á vefnum bleikt.is sem var bara mjög skemmtilegt og var vonandi einhver örvun fyrir þá sem hafa áhuga á hestum og langar að fara inná bóklega sviðið, en alltaf vantar gott fólk inná þann völl. Viðtalið má sjá hér: Konur í námi Í skólanum er lítið bókasafn og hefði ég komist í það á unglingsárum hefði ég sennilega dansað um allt safnið en þar er samansafn fjölmargra bóka og tímarita er aðeins fjalla um hesta. Þarna verð ég eins og krakki í sælgætisverslun enda fágætt að komast í heilt safn bóka er fjalla aðeins um hugðarefni manns. Ég tók bókina Hestar eftir Theodór Arnbjörnsson sem var sannarlega merkur ráðunautur (á árunum 1920-1939) og gerði hrossaræktinni mikið gagn. Það verður gaman að glugga í hana þessa, en hana hef ég ekki fundið áður á bókasöfnum og er mjög dýrmæt og fróðleg bók að mínu mati. Ég er búin að ganga með hugmynd að BS. verkefni í maganum um nokkurt skeið og hef ég lagt hana fram. Ég bjóst reyndar við að ekkert sérstaklega yrði tekið í þá hugmynd eða þá að henni yrði einfaldlega hafnað þar sem hún gæti orðið of viðamikill - en annað kom aldeilis á daginn, mjög vel var í hugmyndina tekið en það verður að skoða útfærslumöguleikana betur og verð ég að skoða það á næstunni - og þar kemur bókasafnið sterkt inn. Mig langar virkilega að gera um þetta efni á einhvern hátt, enda afar áhugavert viðfangsefni. Ég vil þó minnst um það segja enda hafa fæst orð sem minnsta ábyrgð, en vonandi á þetta allt eftir að ganga upp og ég er mjög spennt fyrir náminu hér á Hólum. Með bestu kveðjum, Linda Karen Stilling var sónarskoðuð föstudaginn 2. september og kom í ljós 4 vikna gamalt fyl en henni var haldið undir Þórketil þann 3. ágúst síðastliðinn. Folald mun því fæðast mánaðarmótin júní/júlí 2012 sem er mikið gleðiefni og vonandi á allt eftir að ganga vel hjá hryssunni en hún verður í góðu atlæti á Kjartansstöðum við Selfoss. Þórketill er stórættaður hestur undan Töfra frá Kjartansstöðum og Þotu frá Hólum sem hlaut 8,40 í hæfileika á sínum tíma. Þota er undan heiðursverðlaunahrossunum Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrá frá Hólum og Töfri undan Óð frá Brún og Ternu svo segja má að Þórketill sé mikill og góður genabanki. Gaman verður að sjá afsprengi þeirra tveggja, sem og að fylgjast með þróun Þórketils sjálfs en hann varð eftir á í tamningunni þar sem hann slasaðist illa á hóf 4. vetra en hefur náð sér að fullu og er spennandi alhliða hestur. Með bestu kveðju frá Hólum, Linda Karen |






















RSS Feed