Gleðilegt nýtt ár ! 06/01/2012
Við Stilling á kynningu um Beisli án Méla og Smelluþjálfun hjá hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði í apríl sl. Ljósmynd Dalli (www.dalli.is) Gleðilegt nýtt ár kæru hestamenn! Það er búið að vera alveg vitlaust að gera hjá mér yfir hátíðirnar og þess vegna hefur bloggið mitt legið niðri um smá tíma en ég lofa bót og betrun. Margt skemmtilegt gerðist árið 2011 - Var með kynningu á Beisli án Méla og Smelluþjálfun í reiðhöll Sörla í apríl sem var mjög gaman, lét byggingardæma Stillingu og hélt henni undir hest, tók þátt í starfi Dýraverndarsambands Íslands og Dýraverndarráðs sem fyrr en margt gerðist á báðum stöðum á árinu, tók nýja vöru í umboðssölu (ThinLine) og lét drauminn rætast aðeins meira í áttina að lítillri verslun sem flytur inn vörur er stuðla að aukinni velferð hrossa (Hestvænt). Skondnasta atvik ársins var þó sennilega þegar ég flutti leikþátt sem Steingrímur J. Sigfússon í VG um virkni jákvæðrar styrkingar á hegðun (smelluþjálfun) fyrir framan þáverandi 1. og 2. árs nema í hestafræði og Mette Mannseth sl. sumar. Að ræða þarna svolítið nýja aðferð í ræðupúlti, klædd í jakka og bindi og hendandi viskustykkjum í allar áttir... harla fátt sem toppar það... Háskólinn á Hólum að vorlagi. Sennilega er þó enn mjög heimilslegt þar fyrir jólasveinanna sem stendur. Næsta lota er að hefjast á Hólum, styttist í útskrift. Ég hlakka mikið til að halda áfram enda eru það alger forréttindi að fá að mennta sig - og ekki síst í því sem maður hefur áhuga á. Ég þarf núna að fara á fullt að vinna í B.Sc. verkefninu sem verður spennandi en verkefni mitt fer inn á hreyfingarfræði hrossa sem er nokkuð sem ég hef mikinn áhuga á. Stefni á að halda áfram í mastersnám í hestafræði næsta haust og fara meira inn á hreyfingarfræðina. Það er nú allt á frumstigi en er ótrúlega spennandi. Séð yfir háskólasvæðið á Hvanneyri. Mér langar við þetta tækifæri að nefna aftur hversu þakklát ég er öllu því góða fólki sem gerði, og er að gera þetta nám í hestafræði að veruleika með sínu ötula starfi, framsækni og dugnaði. Ég verð um leið að fá að nefna hversu frábært viðmót starfsfólkið við LbhÍ og Háskólans á Hólum hefur, reynir að gera allt hvað það getur fyrir nemendur og er mjög styðjandi, bæði kennarar og aðrir starfsmenn. Einnig eru nokkrir kennarar skólanna einstaklega hvetjandi og eru um leið frábærir kennarar sem hafa eflt áhuga manns enn frekar og eru manni ákveðnar fyrirmyndir. Þetta nám er þó enn í einhverri mótun og hafa sum atriði liðið örlítið fyrir það á stundum, en auðvitað tekur sinn tíma að byggja hlutina upp svo einstaka misræmi er eðlilegt. Námið á bara eftir að eflast með tímanum, nemendum til góða. Ég er mjög ánægð með námið og verður heldur betur gaman að halda áfram fram á vorið í Hjaltadal. Með bestu kveðju, Linda Karen P.s. Við ''Steingrímur'' fórum nú yfir níuna fyrir verkefnið í sumar... hver veit nema maður bregði sér aftur í líki hans, nei hehe. ;) CommentsLeave a Reply |



RSS Feed