Ný vefverslun - Hestvænt 29/11/2011
Nú hef ég loksins lokið við uppsetningu á nýju vefversluninni fyrir ThinLine og Beisli án Méla og er bara nokkuð sátt við afraksturinn. Fyrir þá sem vilja kíkja við er slóðin: www.hestvaent.net Það hefur lengi verið draumur hjá mér að vera með fleiri vörur og kalla reksturinn þessu nafni, mjög gaman að þetta sé alltaf meira og meira að rætast. Ég ákvað að vera með Facebook síðu fyrir vefinn og gefa eina Ultra ThinLine undirdýnu í verðlaun fyrir að kynna öðrum fyrir vefnum á Facebook. www.facebook.com/hestvaent ThinLine undirdýnurnar eru frammúrskarandi - og get ég fullyrt að þær séu einar bestu undirdýnur sem hægt er að nálgast á Íslandi í dag..... og sennilega í heiminum miðað við meðmælin...! Ég er mjög stolt af því að gera ThinLine aðgengilegt hestamönnum hérlendis og legg ég mun minna á vörurnar en venjulegar hestavöruverslanir myndu gera til að reyna að halda verðinu sem mest niðri, það getur maður gert þegar reksturinn er lítill. Með bestu kveðjum frá ''Norðurpólnum'', Linda Karen PS. Ég veit að ég er nú ekki búin að vera dugleg að skrifa pósta þar sem ég er með ''gagnlega rýni'' en heil ritröð bíður eftir prófin hér á Hólum - af nógu er að taka og alltaf gaman að því. CommentsLeave a Reply |



RSS Feed