Ný vefsíða Kjartansstaða komin í loftið 19/10/2011
Dár frá Kjartansstöðum (Ae: 8,36), undan Tývari frá Kjartansstöðum og Væntingu Stígsdóttur frá Kjartansstöðum. Ditte Søeborg og Dár urðu heimsmeistarar í tölti ungmenna á HM í Austurríki í sumar fyrir hönd Danmerkur. Kjartansstaðir hafa fengið nýja og endurbætta heimasíðu sem mun verða mjög lifandi í vetur, bæði með fréttum og nýjum ljósmyndum. Ég setti síðuna upp og tókst hún held ég ágætlega. Mikið er af efnilegum hrossum á bænum sem stefnt er með í dóm og keppni á næsta ári svo gaman verður að fylgjast með framvindunni. Einnig eru mörg efnileg hross á söluskrá, bæði mikil keppnisefni sem og ræktunar- og reiðhross. Vefsíða Kjartansstaða: www.terna.is En nú er best að fara að sökkva sér ofan í bækurnar - síðasta prófið á þessari stuttönn á föstudaginn kemur.. Með bestu kveðjum að norðan, Linda Karen CommentsLeave a Reply |

RSS Feed